
Dagar koma
og
í birtingu
sá ég þá aftur
koma þungstíga
yfir hæðina
og bera
við kaldsólaðan himin
í þögulli ógn
— Gyrðir Elíasson, úr bókinni Svarthvít Axlabönd frá 1983
Ljósmynd: Pétur Karlsson (Peter Kidson)

Dagar koma
og
í birtingu
sá ég þá aftur
koma þungstíga
yfir hæðina
og bera
við kaldsólaðan himin
í þögulli ógn
— Gyrðir Elíasson, úr bókinni Svarthvít Axlabönd frá 1983
Ljósmynd: Pétur Karlsson (Peter Kidson)

Augu mætast,
hendur finnast,
alveran tekur kipp.
Hjörtu slá
Óðinn til gleðinnar.
— úr ljóðinu „Draumur um veruleika“ eftir Arngrím Vídalín (1984-)
úr bókinni Endurómun upphafsins frá 2006
Mynd og texta valdi Aðalsteinn Atli Guðmundsson
Ljósmynd: Kristján A. Einarsson

„Í dag, mánudaginn 19. september mun Karl Sigurðsson, formaður Umhverfis- og samgönguráðs fara fyrir hjólatúr frá Ráðhúsi Reykjavíkur inn í Laugardal þar sem hann opnar nýjan hjólreiðastíg. Allir eru velkomnir að hjóla með en lagt verður af stað kl. 15 frá Ráðhúsi Reykjavíkur.“
— Reykjavík.is: Samgönguvika í fullum gangi, 19. september 2011
Ljósmynd: Sigurður Úlfarsson

„Fimmtudagur: Allhvöss norðlæg, 8-15 m/s, hvassast með ströndum landsins en þó hægari með suðurströndinni. Rigning norðan og austanlands með snjókomu eða slyddu á fjallvegum. Úrkomuminna þegar líður á daginn og hlýnar. Þurrt og bjart veður sunnanlands og vestan. Hiti 6-12 stig á láglendi en frost til fjalla. Næturfrost um mest allt land aðfararnótt föstudags.“
— Veðurspá fyrir 6. september 2011, DV.is
Ljósmynd: Gunnar Rúnar Ólafsson

„Fótstallurinn undir líkneski Leifa heppna, á Skólavörðuholti, er nú reistur. Er hann furðusmíði að lögun, og engum fótstalli líkur, sem hjer hefir þekkst. Mjög fer fótstallurinn og Skólavarðan ankannalega saman, þarna á holtinu.“
— Morgunblaðið, 11. september 1931
Ljósmynd: Karl Christian Nielsen

„Þannig eru leikir undiropnir stöðugum breytingum. Með breyttu þjóðfélagi og atvinnuháttum hverfa leikir eða aðlagast nýjum aðstæðum. Börn læra það sem fyrir þeim er haft og ef þau geta fylgst með fullornu fólki við vinnu sína bera leikir þeirra þess merki.“
— Bernskan eftir Símon Jón Jóhannsson og Bryndísi Sverrisdóttur (1990)
Ljósmynd: Sigurhans E. Vignir

„Sundlaugin var helsti vettvangur barnanna og unglinganna í Laugarnesi á sumrin. Hún var fljótt órjúfanlegur hluti af daglegu lífi þeirra og aðalsamkomustaður. Þau fóru ekki í sund einu sinni á dag heldur tvisvar eða þrisvar, voru þar jafnvel mestallan daginn þegar frí var frá vinnu og að sjálfsögðu um helgar.“
— Þorgrímur Gestsson, Mannlíf við Sund (1998)
Ljósmynd: Haraldur Sigurðsson

„Nú er lag að leiðrétta þetta og bjóða Vatnsberann heim í miðbæinn úr útlegðinni.“
— úr greinargerð Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar
um flutning Vatnsberans úr Öskjuhlíð í Austurstræti, apríl 2011.
Ljósmynd: Guðgeir Magnússon

„Miðvikudagur, 4. maí 2011. Opnunartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu eru söguleg stund í íslensku tónlistarlífi. Vladimir Ashkenazy stjórnar glæsilegri og fjölbreyttri efnisskrá; hljómsveitin býður Hörpu velkomna í nýju verki Þorkels Sigurbjörnssonar og Víkingur Heiðar leikur píanókonsert Grieg, einn dáðasta píanókonsert allra tíma. Tónleikunum lýkur á 9. sinfóníu Beethovens undir stjórn Ashkenazys, sem er einn fremsti Beethoven-túlkandi vorra tíma og hefur m.a. hlotið fjölda verðlauna fyrir hljóðritanir sínar á píanósónötum og –konsertum meistarans. Einvalalið einsöngvara og kóra tekur einnig þátt í flutningnum.“
— Af vef Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Ljósmynd: Karl Christian Nielsen

Alltaf stendur Esjan hinum megin
og ekki virðist Skarðsheiðin á förum.
Um þessar mundir ég hangi hérna megin
og held mig mest á ónafngreindum börum.
— Hallgrímur Helgason: Á Skúlagötu
Ljósmynd: Sigurhans Vignir Einarsson

„Ég hef oft verið skammaður fyrir að vera þjóðlegur en útlendingar sækja í þetta. Kóngar eru alls staðar eins en fíflin eru öðruvísi og fólk vill sjá þau. Í raun geri ég íslensk verk sem eru alþjóðleg í senn. Þau fjalla um það hvernig Eiffelturninn yrði ef Íslendingar myndu byggja hann.“
— Birgir Andrésson, úr Birgir Andrésson í íslenskum litum eftir Þröst Helgason
Ljósmynd: Tempest Anderson

„Persónuvinsældir Björgvins fóru stigvaxandi. Hann hafði hafði borið af í Bendix, hann hafði ekki átt í neinum vandræðum með að taka við af Jónasi í Flowers, en með Ævintýri þótti hann jafnvel ná nýjum hæðum.“
— “Doktor” Gunnar Hjálmarsson: Eru ekki allir í stuði, 2001
Ljósmynd: Bjarnleifur Bjarnleifsson