
„Skotveiðimenn skila veiðiskýrslum á skilavef Umhverfisstofnunar einu sinni á ári óháð því hvort eitthvað var veitt eða ekki. Þeir sem hafa gefið upp netfang fá sent í janúar lykilorð sem þeir nota til þess að skila skýrslunni og greiða fyrir veiðikortið. Ef þig vantar lykilorð geturðu sent tölvupóst á veidistjorn@ust.is og gefið upp kennitölu og netfang og beðið um að fá lykilorð sent. Með lykilorðinu er hægt að skrá sig inn á vefinn, skila veiðiskýrslu, gefa upp hvernig veiðikortið er greitt og í kjölfar greiðslu er veiðikortið sent. Veiðikort eru ekki send í póstkröfu.“
— Úr nýlegum reglum Umhverfisstofnunar um veiðikort.
Ljósmynd: Eyjólfur Jónsson










