„Hjartað í hverjum einasta bæ úti á landi er bensínsjoppan sem yfirleitt stendur í öðrum hvorum bæjarendanum. Hún þjónar miklu stærra hlutverki en að vera bara bensínstöð og sjoppa. Oft er hún líka myndbandaleiga, varahlutaverslun, kjörbúð og spilasalur. Og auðvitað kaffihús og fréttamiðstöð bæjarins. Á hverjum degi koma fjölmargir bæjarbúa í bensínsjoppuna til að drekka einn kaffibolla og skiptast á fréttum við afgreiðslukonurnar. Því er ekki skrýtið að þær séu sjarmerandi og prófessjónal þessar afgreiðslukonur.“
— úr Góðir Íslendingar eftir Huldar Breiðfjörð, 1998

Ljósmynd: Bragi Guðmundsson