„Skepnan hafði valdið ugg meðal annarra gesta á gistihúsinu Sommerfuglen, enda ólík öllum fuglum sem þeir höfðu áður séð, stærri og svipmeiri, röddin rám og kvakið líkast dauðahryglu kafnandi manns. Fyrstu dagana hafði Jónas tekið geirfuglinn með sér niður í matstofuna, sett hinn ílanga kassa við hlið sér, tekið af honum lokið og matað geirfuglinn á síldinni sem meira en nóg var til af í þessu landi.“
— úr Rökkurbýsnum eftir Sjón, 2008
Ljósmynd: Óþekktur ljósmyndari