„Óvenjuleg mynd frá Húsavík. Engin kirkja, engin höfn, bara kyrrlát mynd af Garðarsbrautinni tekin við endann á steypta kaflanum. Dökklædd kona með tösku eða ráptuðru í hendi, kannski réttkominn úr Hrunabúð. Engir bílar, bara krakkar í litríkum fötum spígsporandi út á miðri götu, eða eru þau ef til vill að bíða eftir einhverju sem við ekki sjáum? Beint framundan símstöðin þar sem mágkonur mína unnu, til hægri byrjunin á Ásgarðsveginum þar sem ég átti heima, Búðaráin þar sem ég veiddi lontur og fleytti skipum rennur undir götunnni og næst framan við grindverkið til hægri leiðin inn í Rauða torgið þar sem systir mín átti heima og flestir leikfélagarnir. Húsavík bernsku minnar rétt uppúr 1970, rétt áður en ég flutti suður.“
— Ljósmynd vikunnar er valin af Sigurði J. Vigfússyni

Ljósmynd: Will Perry