skál reykjavík skál
harðsoðna hálfmelta brúðuborg skál

esjan skartar snjóhettunni
en veðurstofan spáir þíðu
á morgun koma krónur undan snjónum

verðlausar krónur undan snjónum skál
fyrir peníngalyktinni í austurstræti skál
mér slær fyrir brjóstið norðanmegin

skál í botn skál

— „Þína skál Reykjavík“ úr Milljónaævintýrinu (1960) eftir Dag Sigurðarson
© Sigurður Dagsson Thoroddsen

Ljósmynd: Sigurður Úlfarsson