„Mannlegar verur eru skyldar að hjálpa hver annari til að greina gott frá illu, og hvetja hver aðra til að kjósa ið fyrra og hafna inu síðara. Þær ættu ávalt að hvetja hver aðra til að iðka ina æðri hæfileika sína, og til að beina æ meir og meir tilfinningum sínum og viðleitni að vitrlegu marki og íhugunum í stað heimskulegs, að háleitu marki í stað auvirðilegs. En hvorki einn maðr né neinn fjöldi manna hefir rétt til að banna annari mannlegri veru, sem komin er til vits og ára, að fara svo með líf sitt sem hún óskar, af þeirri ástæðu, að henni sé það fyrir beztu sjálfri að henni sé bannað það.“
— úr Frelsinu (1859) eftir John Stuart Mill, í þýðingu Jóns Ólafssonar

Ljósmynd: Einar Einarsson