„Skótau skautafólksins lá eins og hráviði á tjarnarbakkanum eða stóð út úr holum og gjótum. Andri var að reima á sig hinn skautann þegar þær komu skautandi í loftinu og létu hann taka í trefil. Allt í kring skautaði fólk af hjartans lyst. Karlmenn liðu um í ísköldu áreynsluleysi. Þegar Bylgja sleppti treflinum var eins og hún losnaði úr jarðsambandi en Andri stefndi á Iðnó. Síða hárið stóð út í loftið þegar hún fór pírúettu og spurning um mínútur að einhver skautahetjan uppgötvaði hana og skautaði með hana heim í klakahöllina.“
— Pétur Gunnarsson, Persónur og leikendur (1982)
Mynd og texta valdi Hermann Stefánsson rithöfundur

Ljósmynd: Sveinn Þormóðsson