
„Ævar Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá sælgætisgerðinni Freyju, segir að ákveðið hafi verið að leggja áherslu á egg í stærð fjögur í ár en í fyrra var mest framleitt af eggjum í stærð númer níu og tíu. „Við óttumst ekki hrun á sölu páskaeggja þar sem fólk setur nú yfirleitt börnin í forgang og hefðin fyrir páskaeggjum er rík.“ Undir þetta tekur Kristján Geir Gunnarsson, markaðsstjóri hjá Nóa Siríusi. „Við erum bjartsýn en raunsæ og leggjum áherslu á smærri egg en á síðustu árum.“ Páskaeggin hafa hækkað um tuttugu prósent milli ára enda hráefnisverð hækkað mikið eins annað. Ævar og Kristján segja það ekki hafa komið til tals að minnka innihald eggjanna eða þynna súkkulaðihjúpinn.“
— Morgunblaðið, 19. mars 2009
Ljósmynd: Gunnar Heiðdal