„Frei spurði Ólaf Ragnar hvort hann teldi, að viðbrögðin við öskuskýinu hefðu verið yfirdrifin. Enginn getur svarað þeirri spurningu, sagði Ólafur Ragnar. Því við höfum lært það í þessu landi, að þegar eldgos verða þá getur enginn mannlegur máttur stöðvað slíkt. Við á Íslandi erum afar þakklát fyrir, að engan sakaði vegna eldgossins, hvorki hér né annarstaðar í heiminum. Það var vegna þess að bæði hér og í öðrum löndum var öryggið látið ganga fyrir, sagði Ólafur Ragnar.“
— Morgunblaðið, 22. apríl 2010

Ljósmynd: Karl Nielsen