
„Útsendarar erlendra plötuútgáfufyrirtækja munu fjölmenna til Islands um miðjan október vegna stórtónleika Flugleiða og EMI, Iceland Airwaves, sem haldnir verða í Flugskýli 4 laugardaginn 16. október næstkomandi. Að sögn Baldurs Stefánssonar, annars skipuleggjenda tónleikanna hérlendis, hefur hugmyndin um alþjóðlega tónlistarviku þar sem erlendar hljómsveitir kæmu til landsins og íslenskar hljómsveitir yrðu kynntar fyrir frammámönnum í tónlistarútgáfu lengi blundað í mónnum og þegar höfundarréttarfyrirtækið EMI hafði samband við Flugleiðir fyrir nokkrum mánuðum komst hugmyndin á framkværndastigið.“
—Morgunblaðið, 11. september 1999.
Ljósmynd: Óþekktur ljósmyndari