„Elsta dæmi um áramótabrennu, sem fundist hefur, er frá árinu 1791, og eiga þá piltar í Hólavallaskóla í Reykjavík hlut að máli. Sveinn Pálsson segir svo frá: Á aðfangadagskvöld jóla skreyta skólapiltar skólann ljósum með ærnum kostnaði eftir efnahag þeira. Alls eru sett upp um 300 kerti í tvöfalda röð meðfram gluggum og í ljósahjálma í loftinu. Sérstaklega er kennarapúltið skreytt með ljósum, lagt silki og öðrum slíkum útbúnaði. Á gamlárskvöld halda þeir brennu á hæð einni skammt frá skólanum, sem þeir kalla Vulkan. Er brennan svo stór, að hún sést úr margra mílna fjarlægð. Hæðin Vulkan hefur að líkindum verið Landakotshæð.“
— Úr Sögu daganna eftir Árna Björnsson

Ljósmynd: Þjóðviljinn