Sigling

Hafið, bláa hafið, hugann dregur.
Hvað er bak við ystu sjónarrönd?
Þangað liggur beinn og breiður vegur.
Bíða mín þar æskudrauma lönd.
Beggja skauta byr
bauðst mér aldrei fyrr.
Bruna þú nú, bátur minn.
Svífðu seglum þöndum,
svífðu burt frá ströndum.
Fyrir stafni haf og himinninn.


Ljóð: Friðrik Bjarnason Texti: Örn Arnarson

Ljósmynd: Gunnar V. Andrésson