
“Kópavogskirkja var reist á árunum 1958-1962 eftir teikningum frá embætti húsameistara ríkisins sem Hörður Bjarnason veitti forstöðu á þeim tíma. Ragnar Emilsson arkitekt hjá embættinu vann ásamt húsameistara mikið að teikningu kirkjunnar. Grunnur hennar var helgaður þann 16. ágúst árið 1958 og hornsteinn lagður af biskupi Íslands þann 20. nóvember árið eftir. Það var svo þann 16. desember árið 1962 sem kirkjan var vígð af Sigurbirni Einarssyni þáverandi biskupi Íslands.”
− Af vefnum: http://kopavogskirkja.is/um-kirkjuna/
Ljósmynd: Sigurhans Vignir