Engar myndir í póstinum? Smelltu hér

Ljósmynd vikunnar á Facebook

Ljósmynd vikunnar

úr Ljósmyndasafni Reykjavíkur

20. október 2009

Smelltu hér ef þú sérð ekki myndina

© Ljósmyndsafn Reykjavíkur

Tvö börn bregða á leik með lambi, 1925-35.

„Það voru þessar flökkukindur sem hann var á höttunum eftir, þær skyldu ógjarna krókna eða horfalla á heiðum uppi af þeirri einni ástæðu að enginn nennti eða treysti sér til að leita þeirra og bjarga þeim til byggða. Einnig voru þetta lífverur, skepnur gæddar holdi og blóði, og það hafði æxlast svo að hann bar einskonar ábyrgð á þeim.“

— úr Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson, 1939

Ljósmynd: Eggert P. Briem

Finnst þér myndin góð? Bentu einhverjum á hana

Deila á Facebook · Skrifa athugasemd

Eldri ljósmyndir vikunnar

Smelltu hér ef þú sérð ekki myndina
Smelltu hér ef þú sérð ekki myndina
Smelltu hér ef þú sérð ekki myndina

Útsending Ljósmyndar vikunnar
er góðfúslega kostuð af

Iceland Express flýgur til New York
sumarið 2010. Sala er hafin.

Fréttir af safninu

How do you like Myceland?

Franski ljósmyndarinn Grégory Gerault hefur komið reglulega til Íslands í sjö ár. Sýningin MYCELAND sem opnar í Ljósmyndasafninu núna á fimmtudaginn er afraksturinn.

Í texta Ásdísar Ólafsdóttur listfræðings um sýninguna segir:

Grégory hefur gert að sínu landið, fólkið og lífsmynstur þess og hann horfir ekki á það utan frá heldur að innan með skilningi þess innvígða. Það er væntumþykja í augnaráði hans, eins og sonar sem horfir á aldraða foreldra eða á bernskuslóðir sínar. MYCELAND Grégorys er bæði kunnuglegt og framandi, hans og okkar.

Sýningin er opin alla daga vikunnar og aðgangur er ókeypis.

Ljósmynd: Grégory Gerault

Sent til [email] frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Smelltu hér til að segja upp áskriftinni · Áframsendu þessa mynd · Senda á Facebook