|
Fréttir af safninu
Franskar hreyfimyndir gera innrás í Ljósmyndasafnið
Í tengslum við sýninguna André Kertész — Ma France ætla Ljósmyndasafnið og vinir þess hjá Alliance français að sýna nokkrar franskar kvikmyndir í sal safnsins tvær helgar.
Myndirnar sem bæði eru stuttmyndir og heimildamyndir tengjast allar Frakklandi á einn eða annan manière.
Ein þeirra er „Rauða blaðran,“ 36 mínútna stuttmynd eftir Albert Lamorisse sem fékk Gullpálmann í Cannes 1957; meistaraverk í flokki barnamynda. Í París finnur lítill strákur stóra rauða blöðru bundna við ljósastaur. Þannig byrjar saga vináttu hans og blöðrunnar, sem eltir litla strákinn af eigin rammleik um götur Parísar …
Myndirnar verða sýndar klukkan þrjú, næstu tvo laugardaga. Skoðaðu dagskrána hér.
|