Engar myndir í póstinum? Smelltu hér

Ljósmynd vikunnar á Facebook

Ljósmynd vikunnar

úr Ljósmyndasafni Reykjavíkur

24. nóvember 2009

Smelltu hér ef þú sérð ekki myndina

© Ljósmyndsafn Reykjavíkur

Börn og kona á gangi á Húsavík, c. 1970-73.

„Óvenjuleg mynd frá Húsavík. Engin kirkja, engin höfn, bara kyrrlát mynd af Garðarsbrautinni tekin við endann á steypta kaflanum. Dökklædd kona með tösku eða ráptuðru í hendi, kannski réttkominn úr Hrunabúð. Engir bílar, bara krakkar í litríkum fötum spígsporandi út á miðri götu, eða eru þau ef til vill að bíða eftir einhverju sem við ekki sjáum? Beint framundan símstöðin þar sem mágkonur mína unnu, til hægri byrjunin á Ásgarðsveginum þar sem ég átti heima, Búðaráin þar sem ég veiddi lontur og fleytti skipum rennur undir götunnni og næst framan við grindverkið til hægri leiðin inn í Rauða torgið þar sem systir mín átti heima og flestir leikfélagarnir. Húsavík bernsku minnar rétt uppúr 1970, rétt áður en ég flutti suður.“

Ljósmynd vikunnar er valin af Sigurði J. Vigfússyni

Ljósmynd: Will Perry

Finnst þér varið í myndina?

Settu hana á Facebook vegginn þinn

Eldri ljósmyndir vikunnar

Smelltu hér ef þú sérð ekki myndina
Smelltu hér ef þú sérð ekki myndina
Smelltu hér ef þú sérð ekki myndina

Útsending Ljósmyndar vikunnar
er góðfúslega kostuð

Bændamarkaður frú Laugu. Matur frá íslenskum bændum fyrir fólk sem vill vita hvað það borðar.

Fréttir af safninu

Franskt kvöld í Ljósmyndasafninu á fimmtudaginn

Við minnum á Ma France, ljóðalestur og tónleika í Ljósmyndasafninu núna á fimmtudagskvöldið.

Sigurður Pálsson les ljóð og tríó Vadims Federov spilar franska musett- og valsmúsík í góðu blandi við heims- og jazzmúsík á frönsku kvöldi sem Ljósmyndasafnið stendur að ásamt Alliance français þann 26.nóvember og er einnig á dagskrá Ljómandi borgar, sem Reykjavíkurborg stendur að.

Allt þetta er í tengslum við sýninguna André Kértész Frakkland – landið mitt / Ma France, sem við hvetjum þig til að koma að sjá með öllum vinum þínum.

Dagskráin byrjar klukkan átta og það kostar ekkert inn.

Sent til [email] frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Smelltu hér til að segja upp áskriftinni · Áframsendu þessa mynd · Senda á Facebook