|
Bjalla í snjó á Kringlumýrarbraut, 1960–70
skál reykjavík skál
harðsoðna hálfmelta brúðuborg skál
esjan skartar snjóhettunni
en veðurstofan spáir þíðu
á morgun koma krónur undan snjónum
verðlausar krónur undan snjónum skál
fyrir peníngalyktinni í austurstræti skál
mér slær fyrir brjóstið norðanmegin
skál í botn skál
— „Þína skál Reykjavík“ úr Milljónaævintýrinu (1960) eftir Dag Sigurðarson © Sigurður Dagsson Thoroddsen
Ljósmynd: Sigurður Úlfarsson
|