|
Haukur Morthens söngvari í upptökusal, 2. desember 1981
Til eru fræ sem fengu þennan dóm:
Að falla í jörð en verða aldrei blóm.
Eins eru skip sem aldrei landi ná,
og iðgræn lönd er sökkva í djúpin blá,
og von sem hefur vængi sína misst,
og varir sem að aldrei geta kysst,
og elskendur sem aldrei geta mæst
og aldrei geta sumir draumar ræst.
Til eru ljóð sem lifna og deyja í senn,
og lítil börn sem aldrei verða menn
— „Til eru fræ“ úr Kveðjur (1924) eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi (1895–1964)
Ljósmynd: Úr safni DV/Óþekktur ljósmyndari
|