|
Sófi eftir Árna Jónsson í íbúð eftir Sigvalda Thordarson í fjölbýlishúsi við Miklubraut, 1962
Þau létu sig dreyma upphátt um Chesterfield sófa og Express bakkaði þau upp í því. Þau eyddu drjúgum hluta af sumarleyfinu í að elta uppi sveitamarkaði þar sem mátti fá tin á góðu verði, strástóla, glös sem báðu mann að drekka úr sér, hnífa með beinskafti, eirgræna diska sem upplagt var að hafa fyrir öskubakka. Þau voru viss um að hafa séð þetta allt í Express eða Express átti eftir að fjalla um það. En þegar á hólminn var komið var kaupgeta þeirra verulega frábrugðin þeirri sem Express hafði í hávegum. Þau voru ekki ennþá fyllilega búin að „koma sér fyrir.“
— Georges Perec: Hlutirnir, 1965 í þýðingu Péturs Gunnarssonar
Ljósmynd: Andrés Kolbeinsson
|